Heimilisfriður
Vegna sumarleyfa verður skiptiborðið og móttakan lokuð frá og með 17. júlí til og með 3. ágúst. Full starfsemi hefst síðan þann 4 ágúst. Stofan er þó opin á meðan lokuninni stendur. Ef þú átt bókaðan tíma en þarft að afbóka eða breyta tímanum er þér bent á að senda viðkomandi sálfræðingi tölvupóst. Hér er hlekkur á sálfræðingana okkar ásamt netföngum. https://www.salfraedistofan.is/starfsfolk/
Sálfræðistofan Höfðabakka sinnir greiningu og meðferð við sálrænum vanda barna, unglinga og fullorðinna. Einnig sinnum við fjölskyldu- og parameðferð, handleiðslu og ýmiskonar námskeiðshaldi. Við bjóðum upp á fjölbreytta fagþekkingu og meðferðarstarf sem veitt er af reynslumiklum sálfræðingum og öðrum fagstéttum.
Hafa samband
Boðið er upp á einstaklingsmeðferð sem tekur til dæmis á depurð, kvíða, streitu, kulnun, átröskunum, áföllum, sjálfsmyndarvanda og erfiðum upplifunum.
Boðið er upp á fjölskyldumeðferð fyrir fólk sem á við vanda að stríða varðandi samskipti og tengsl við sína nánustu.
Boðið er upp á meðferð fyrir börn og ungmenni sem eiga við tilfinningavanda og/eða hegðunarvanda að stríða - ásamt uppeldisráðgjöf til foreldra.
Boðið er upp á handleiðslu fyrir fagfólk eins og sálfræðinga, lækna, hjúkrunarfræðinga og félagsráðgjafa ásamt annarri almennri handleiðslu.
Heimilisfriður
Í meðferðarvinnu er lögð áhersla á að byggja upp góð tengsl og að vinna í samvinnu í átt að skýrum markmiðum.