Vigdís M. Jónsdóttir

Vigdís M. Jónsdóttir

Vigdís M. Jónsdóttir er sálfræðingur sem býður upp á sálfræðimeðferð og ADHD greiningar fyrir fullorðna. Hún hefur starfað bæði innan opinbera geirans og í sjálfstæðum rekstri og unnið með fjölbreyttum hópi fólks á öllum aldri.

Hvenær getur meðferð hentað þér?

Vigdís vinnur meðal annars með fólki sem glímir við:

  • Kvíða og streitu
  • Þunglyndi og lágt sjálfsmat
  • ADHD og aðrar áskoranir tengdar taugafjölbreytileika
  • Áföll og erfiða lífsreynslu
  • Álagstímabil og kulnun

Vigdís býður eingöngu uppá fjarviðtöl.

Aðferðir sem stuðst er við

Meðferðin tekur mið af markmiðum og þörfum hvers og eins og byggir á gagnreyndum aðferðum:

  • ACT, Acceptance and Commitment Therapy
  • Díalektísk atferlismeðferð (DAM)
  • Internal Family Systems (IFS)
  • Á síðustu árum hefur Vigdís lagt aukna áherslu á líkamlega þætti sem tengjast geðheilsu og sérhæft sig í nálgun sem kallast metabolic psychiatry. Þar er skoðað hvernig næring, svefn, hreyfing og efnaskipti hafa áhrif á andlega líðan.

ADHD greining fyrir fullorðna

Vigdís sinnir ADHD greiningum hjá fullorðnum. Greiningin fer fram í fjarviðtölum og byggir á viðurkenndum greiningarviðtölum og spurningalistum. Að greiningu lokinni færð þú greiningarskýrslu og ráðgjöf um næstu skref.

Hvernig fara fjarviðtöl fram?

Öll viðtöl fara fram í gegnum örugga fjarfundagátt. Þú getur því sótt þjónustuna hvar sem þú ert á landinu eða erlendis.

Menntun

  • BA gráða í sálfræði frá Harvard University
  • Meistaragráða í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík

Bóka tíma

Þú getur bókað fyrsta viðtal á deartherapist.org, haft samband við móttökuna í síma: 527-7600 eða sent tölvupóst á mottaka@salfraedistofan.is

Sálfræðingur