Elísabet Ósk Vigfúsdóttir
Elísabet Ósk er fjölskyldufræðingur, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. Hún starfar sem pararáðgjafi og fjölskyldufræðingur og hefur sérhæft sig í meðferðarvinnu með pörum og fjölskyldum þar sem unnið er með samskipti, tilfinningar og tengsl.
Hún hefur einnig lokið námi í hugrænni atferlismeðferð og MÁPM námi í meðvirkni- og áfallameðferð, sem nýtist í vinnu með einstaklinga sem hafa upplifað áföll í uppvexti og finna fyrir áhrifum þeirra síðar á lífsleiðinni.
Elísabet hefur lokið ICEEFT-viðurkenndu Externship námi í tilfinningamiðaðri parameðferð (EFT) og einnig sérhæfðu EFCT námskeiði með áherslu á kynlíf og nánd í parasamböndum. Hún vinnur út frá tilfinningamiðaðri nálgun (EFT), þar sem lögð er áhersla á að skilja og vinna með tilfinningar og tengslamynstur í nánum samböndum.
Hún hefur jafnframt öðlast alþjóðlega löggildingu í námskeiðshaldi fyrir pör, PREP (Prevention and Relationship Enhancement Program), og lokið námi í Par-tjek hjá Center for Familieudvikling.
Elísabet hefur einnig lokið námi sem sáttamiðlari og viðbótarnámi í meðferðarvinnu með foreldrum og börnum í skilnaðarferli og þjálfun í meðferðarsamtölum við foreldra sem eiga í miklum ágreiningi í kjölfar skilnaðar.
Meðferðarnálgun
Í meðferðarvinnu leggur Elísabet áherslu á að mæta einstaklingum af virðingu, á jafningjagrundvelli og án fordóma. Hún vinnur með rót vandans og nýtir:
- tilfinningamiðaða meðferðarnálgun (EFT)
- tengslakenningar
- meðvirkni- og áfallameðferð
- lausnamiðaða nálgun
Markmið meðferðar er að bæta samskipti, auka skilning á eigin tilfinningum og styðja við öruggari og heilbrigðari tengsl.
Hvað er EFT?
Tilfinningamiðuð meðferð (EFT) er gagnreynd aðferð í parameðferð sem beinist að því að skilja og breyta neikvæðum samskiptamynstrum.
Í mörgum samböndum festast pör í ákveðnum mynstrum, svo sem gagnrýni, varnarviðbrögðum eða fjarlægð. Með tímanum getur þetta leitt til aukinnar spennu, misskilnings og erfiðleika í samskiptum.
Í EFT er unnið markvisst með þessi mynstur. Pör læra að greina hvað gerist í samskiptum þeirra og þróa nýjar leiðir til að bregðast við. Markmiðið er að bæta samskipti, draga úr árekstrum og styrkja tengsl.
Af hverju EFT?
- Aðferðin er gagnreynd og viðurkennd í alþjóðlegu fagumhverfi
- Rannsóknir sýna að 70–75% para upplifa verulegar framfarir
- Um 90% para finna fyrir bættum samskiptum
- Nýtist vel þegar unnið er með áföll, trúnaðarbrot og langvarandi samskiptavanda
Elísabet býður m.a. upp á:
- Einstaklings- og fjölskyldumeðferð
- Parameðferð
- Áfalla- og meðvirknimeðferð
- Skilnaðarráðgjöf, forsjár- og umgengnismál
- Ráðgjöf fyrir stjúpfjölskyldur
- Sáttamiðlun í samskiptaerfiðleikum og ágreiningi
- Ráðgjöf fyrir foreldra og verðandi foreldra
- Einstaklings- og fjölskylduráðgjöf vegna fíknar og/eða vímuefnavanda
Elísabet býður upp á meðferð á íslensku og dönsku.
Elísabet er með starfsleyfi frá Embætti landlæknis.
Hafa samband
elisabet@salfraedistofan.is
527 7600
Nánari upplýsingar: https://ufr.is
Instagram: https://www.instagram.com/urdarbrunnur_fjolskylda
Fjölskyldufræðingur og pararáðgjafi