Einstaklingsmeðferð

Boðið er upp á einstaklingsmeðferð sem tekur til dæmis á depurð, kvíða, streitu, kulnun, átröskunum, áföllum, sjálfsmyndarvanda og ýmsum erfiðum upplifunum.  Í upphafi meðferðar er vandinn greindur og meðferðaráætlun búin til í kjölfarið.  Oftast er lögð fyrir einhver heimavinna milli meðferðartíma til að auka árangur.  Allar ákvarðanir um slíkt eru teknar í samráði við skjólstæðinginn.  

 

Sálfræðimeðferð miðar fyrst og fremst að því að auka lífsgæði þess sem hana sækir. Reynt er að aðstoða skjólstæðing við að öðlast skilning og betri stjórn á lífi sínu og aðstæðum. Markmiðið er að finna lausnir á vanda sem hefur fest sig í sessi og sem skjólstæðingur hefur ákveðið að leysa á markvissan hátt.

 

Eingöngu er notast við gagnreyndar meðferðir - sem sýnt hefur verið fram á í rannsóknum að virka.  Dæmi um þær meðferðarleiðir sem okkar fagfólk notar eru:  

 

  • Hugræn atferlismeðferð - (HAM).
  • Acceptance and committment therapy (ACT).
  • EMDR áfallameðferð.
  • Samkenndarmeðferð (Self-Compassion therapy).
  • Núvitundarþjálfun.
  • Díalektísk atferlismeðferð (DBT).
  • Hugræn berskjöldunarmeðferð (CPT).
  • Tilfinningamiðuð parameðferð (EFT).
  • Sáttamiðlun.