Magnús Karl Magnússon
Magnús sinnir meðferðarvinnu með ungmennum og fullorðnum sem vilja efla andlega heilsu, takast betur á við kvíða, streitu og sjálfsefa og styrkja sig í krefjandi aðstæðum. Sem íþróttasálfræðiráðgjafi hefur hann sérstakan áhuga á því hvernig hugsanir, tilfinningar og hegðun tengjast líðan og frammistöðu, hvort sem er í íþróttum, námi, starfi eða daglegu lífi. Í starfi sínu styðst hann að mestu leyti við ACT (Acceptance and Commitment Therapy).
Menntun
Magnús lauk B.Sc. gráðu í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019 og M.Sc. gráðu í íþróttasálfræði frá Halmstad University árið 2022. Síðustu ár hefur hann starfað með íþróttafólki, þjálfurum og landsliðshópum með áherslu á andlega færni og frammistöðu undir pressu.
Íþróttasálfræðiráðgjafi