Henrietta Ósk Gunnarsdóttir

Henrietta Ósk Gunnarsdóttir

Henrietta Ósk sinnir almennri sálfræðimeðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna. Hún hefur víðtæka reynslu af því að vinna með tilfinninga- og samskiptavanda og ofbeldishegðun.

Hún sinnir meðferð fyrir fólk sem hefur beitt ofbeldi í nánum samböndum eða verið beitt ofbeldi og er einn af sálfræðingum Heimilisfriðar.

Hún er einn af stofnendum úrræðisins Taktu skrefið og sinnir meðferð fyrir einstaklinga sem hafa áhyggjur af kynferðislegri hegðun og/eða hugsun sinni eða jafnvel verið sakað um óæskilega kynhegðun.

Henrietta Ósk býður upp á viðtöl bæði í Reykjavík sem og á Selfossi. Þá býður hún upp á staðviðtöl sem og fjarviðtöl.


Fyrri störf
Henrietta Ósk starfaði sem sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins og er í sérhæfðu teymi á vegum Barnaverndarstofu sem sinnir sálfræðiþjónustu vegna óviðeigandi kynhegðunar barna.

Menntun

BA sálfræði Háskólinn Akureyri (2011-2014)

MA í félags- og afbrotafræði Háskóli Íslands (2014-2017)

MSc klínísk sálfræði Háskólinn í Reykjavík (2017-2019)


Hún hefur einnig setið fjölda endurmenntunarnámskeiða, vinnustofa og sótt ráðstefnur, bæði hérlendis og erlendis.

Almenn sálfræðimeðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna.

Sálfræðingur