Guðný Eyþórsdóttir
Guðný er menntaður fjölskyldumeðferðarfræðingur og býður upp á fjölskyldu- og pararáðgjöf.
Guðný er einnig löggildur náms- og starfsráðgjafi og hefur starfað sem slíkur til fjölda ára, auk þess að vera tengiliður farsældar hjá Hafnarfjarðarbæ. Hún hefur því mikla reynslu af því að vinna með börnum, unglingum og fjölskyldum þeirra.
Í vinnu sinni leggur Guðný metnað í að efla tengsl, traust, samvinnu og nánd í samskiptum. Hún leggur áherslu á að sýna hlýju, virðingu og fagmennsku í öruggu og fordómalausu rými.
Ef þú upplifir áskoranir í sambandi eða vilt efla tengslin og auka nándina getur verið dýrmætt að ræða málin við faglegan og hlutlausan aðila. Ráðgjöf er þó ekki bara gagnleg þegar allt er í hnút, heldur líka fyrir þau sem vilja skilja hvort annað betur, styrkja sambandið og auka gleðina í daglegu lífi. Fjölskyldu- og pararáðgjöf á að vera öruggur vettvangur til samtals og lausnaleitar.
Í vinnu sinni notast Guðný við gagnreyndar aðferðir og styðst hún m.a. við tengslakenningar og aðferðarfræði tengda Emotional focused therapy, Narrative Therapy og og Solution focused therapy.
Guðný sinnir;
- Parameðferð / Fjölskyldumeðferð / Einstaklingsviðtölum
- Samskiptavanda
- Tengslavanda
- Kynlífstengdri ráðgjöf
- Uppeldisráðgjöf
- Erfileikum tengdum námi eða skólasókn
- Samvinnu við skilnað
Guðný býður upp á meðferð á íslensku og ensku. Fjarviðtöl möguleg eftir samkomulagi.
Menntun:
M.A diplóma í Fjölskyldumeðferðarfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands
M.A í Náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands
B.A gráða í Uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands
Nýleg námskeið/sérhæfing:
2026: Í gangi: Sex Therapy Practitioner Certification. Naturalistico certification program.
From Conflict To Connection. Relationship Workshop Masterclass.
Trauma Healing. Webinar with Gabor Maté, Tim Fletcher & Marisa Peer.
2025: Að efla seiglu ungmenna: Verkfæri fyrir fagfólk. Endurmenntun Háskóla Íslands.
Turning Conflict into Connection. Online workshop with Ester Perel.
Kynferðisofbeldi og kynferðisleg hegðun barna og unglinga - Fyrir þau sem starfa með börnum og unglingum. Barna- og fjölskyldustofa.
Farsældarskólinn. Námskeið fyrir tengiliði farsældar.
2024: “Building Resilience and Brighter Futures” (BUILD). Réttindanámskeið fyrir leiðbeinendur.
2023: „Hjálp til sjálfshjálpar“. HAM Námskeið fyrir fagfólk. Reykjalundur.
Fjölskyldufræðingur