Auður Eiríksdóttir
Auður er sálfræðingur og doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík sem hefur sérhæft sig í meðferð tilfinningavanda kvenna á meðgöngu og eftir barnsburð.
Auður vinnur helst með meðgöngutengdan kvíða og fæðingarþunglyndi. Hún vinnur einnig með konum og mæðrum á barneignaaldri sem glíma við þunglyndi, almennan kvíða, og/eða streitu í foreldrahlutverkinu. Þá hefur Auður einnig sérstakan áhuga á tilfinningarlegum afleiðingum ófrjósemi.
Auður útskrifaðist frá Háskóla Íslands með B.A. gráðu í sálfræði árið 2004 og með Cand. Psych gráðu árið 2006. Frá útskrift og fram til ársins 2017 starfaði Auður sem sálfræðingur hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð. Auður hefur eftir það starfað sem sálfræðingur á einkastofum þar sem hún hefur sinnt greiningu og sálfræðilegri meðferð fullorðinna með sérstaka áherslu á kvíðavanda óléttra kvenna.
Doktorsverkefni Auðar fjallar um Hugræna atferlismeðferð (HAM) við kvíða á meðgöngu, nánar tiltekið hvernig meðgöngutengdur kvíði þróast og hvernig hann viðhelst. Í doktorsnáminu hefur Auður jafnframt lokið starfsnámi sem sálfræðingur hjá áhættumæðravernd kvennadeildar Landspítalans.
Sálfræðingur