Halldóra Björk Bergmann

Halldóra Björk Bergmann

Halldóra sinnir meðferð og ráðgjöf fullorðinna. Þau svið meðferðar og ráðgjafar sem hún hefur sinnt eru m.a. sálfræðileg greining, meðferð við áföllum, áfallastreituröskun, kvíða, lágu sjálfsmati, þunglyndi, auk þess vandamálum tengdum samskiptum, meðvirkni, streitu, kulnun, áfengis- og vímuefnavanda og sorg.

Halldóra hefur langa reynslu af kennslu, ráðgjöf, námskeiðahaldi og meðferðarvinnu. Sérhæfð í meðferðarvinnu við áfallastreituröskun þar sem hún beitir EMDR áfallameðferð og hugrænni atferlismeðferð (HAM). Vinnur einnig með ACT-meðferð (Acceptance and Commitment Therapy).

 

Menntun:

Halldóra útskrifaðist með Cand.Psych. gráðu frá Háskólanum í Árósum, Danmörku, árið 2000. Hún lauk sérfræðinámi í hugrænni atferlismeðferð á vegum Endurmenntunarstofnunar H.Í. og Oxford Cognitive Therapy Center árið 2008. Á árunum 2010-2012 sótti hún þjálfun í EMDR-sálfræðimeðferð og meðferðarfræðum (EMDR er heildstæð sálfræðileg meðferð sem þróuð var til að vinna úr afleiðingum áfalla). Halldóra er auk þess með starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi (H.Í. 1994), framhaldsskólakennari (1990) og tannfræðingur (1981). Þá hefur hún sótt fjölda námskeiða gegnum tíðina til að styrkja sig og efla í sínu starfi.

 

Verkefni:

Halldóra hefur rekið eigin sálfræðiþjónustu í Reykjavík frá árinu 2002 og á Selfossi á árunum 2002 - 2010. Hún starfaði sem sálfræðingur hjá Janusi endurhæfingu ehf. frá 2003 – 2016 og byggði upp og þróaði sálfræðiþjónustuna þar. Hún hefur einnig starfað sem sálfræðingur hjá Akureyrarbæ í fjölskyldu- og félagsþjónustu og barnaverndarmálum. Einnig starfað sem sálfræðingur á skólaskrifstofu Suðurlands.

 

Halldóra hefur staðið fyrir fjölda námskeiða í HAM (Hugrænni atferlismeðferð) og ACT (Acceptance and Commitment Therapy)) fyrir fólk með kvíða, þunglyndi og félagsfælni. Haldið fyrirlestra um ACT og EMDR-áfallameðferð og kennt sálfræðiáfanga í framhaldsskólum til fjölda ára.

 

Trúnaðarstörf:

Halldóra hefur setið í stjórn og nefndum Félags sálfræðikennara og Félags sjálfstætt starfandi sálfræðinga.

Sálfræðingur